Gljúfurá, jörð í Borgarfirði
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. [email protected]
Um er að ræða til sölun 16,67% eignarhluta í óskiptir sameign í jörðinni Gljúfurá í Borgarfirði. Jörðin er vel í sveit sett og stutt í alla afþreyingu, útivist og þjónustu.
Jörðin hefur ýmsa landkosti, m.a. veiðihlunnindi í Gljúfurá. Jörðin er kjarri vaxinn og býður upp á að stunda útivist af ýmsu tagi.
Ræktuð tún er á jörðinni sem notuð í beit fyrir hross, á framræstum túnum. Einnig eru sumarhús á jörðinni og möguleiki að byggja fleiri.
Jörðin er talin vera um 440 ha m.v. yfirborðsmælingu af korti. Jörðin hefur ágætis undirlendi, gras- og kjarravaxin. Klettar og hæðir eru í landslaginu sem gerir hana fallega og spennandi. Mikið og fagurt úrsýni er af jörðinni. Falleg fjallasýn er í austur og suður, allt frá Langjökli, Skarðsheiði, Skessuhorn og að Hafnarfjalli til sjávar. Í norðri er leið að Langavatni og fjalla sýn yfir á Mýrarnar. Í norðri er Langavatn sem hægt er að aka að. Vegur liggur um jörðina þangað.
Best er að skoða jörðina og upplifa af eigin raun, þá stemmingu.
Stutt er í Borgarnes. Næsta nágreni er jörðin Svignaskarð við Þjóðveg 1, þegar ekið er norður, þá er næst Baula þjónustumiðstöð og bensínstöð. Beygt er út af þjóðvegi t.h. í norður, þegar komið er sunna frá, Borgarnesi og inn á afleggjara merkt ,,Langavatnsvegur“. Þegar sumarhúsabyggð, Svigaskarð, er sleppt, er næst jörðin Gljúfurá.
Nánari upplýsingar hjá Finnboga Kristjánssyni lögg. fasteignasala [email protected] og 897-1212
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í rúm 35 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu og veðmötum á fasteignum. Einnig í fjármálum heimilanna, rekstri smærri fyrirtækja, sölu fasteigna, skipa, lands og bújarða
Verð |
32.000.000 kr. |
---|---|
Fasteignamat |
6.242.000 kr. |
Stærð |
440 ha |
Tegund |
Jörð |